Dr. Hákon Hákonarsson, sem starfað hefur hjá deCODE síðustu átta ár og nú síðast sem þróunarstjóri félagsins, hefur ákveðið að hætta störfum hjá fyrirtækin, segir í fréttatilkynningu.

Tómas Sigurðsson, sem stýrt hefur fjármála- og tengslasviði deCODE, mun taka við starfi Hákonar, segir í tilkynningunni.