Dr. Hannes Högni Vilhjálmsson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík eftir mat alþjóðlegrar hæfisnefndar. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Hannes sinnir nú um mundir fjölbreyttri kennslu við tölvunarfræðideild og hefur meðal annars þróað ný námskeið á sviði leikjavélagerðar, máltækni og sýndarumhverfis. Hann lauk doktorsprófi í Miðlunarlistum og -vísindum frá MIT - Massachusetts Institute of Technology árið 2003 og meistaraprófi frá sama skóla árið 1997. Hann útskrifaðist sem tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands 1994.

Hannes Högni hefur birt yfir 70 ritrýndar greinar, með um 5500 tilvísanir, stýrt fjölda styrktra rannsóknaverkefna og haft umsjón með yfir 35 rannsóknarverkefnum nemenda, bæði á framhalds- og grunnnámsstigi.

„Auk rannsókna og kennslu, hefur Hannes Högni verið sinnt nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Hann er meðal stofnenda Alelo Inc. í Kaliforníu, sem hefur unnið að þróun og nýtingu félagslegra vitvera í tungumálakennslu síðan 2005 og er nú með hálfa milljón notenda í yfir 25 löndum.

Hann var einnig meðal stofnenda Mind Games ehf, sem var fyrst fyrirtækja með heilabylgjustýrða leiki á Apple Store. Hann er nú hluti teymisins á bakvið Envralys, nýja  þjónustu sem nýtir sýndarveruleika til að mæla sálræn áhrif manngerðs umhverfis á fólk, áður en framkvæmdir hefjast. Að auki hefur Hannes Högni gegnt ráðgjafahlutverki hjá fjölda sprota sem vaxið hafa úr háskólaumhverfinu.“