Stjórnvöld í Kína banna sýningar á endurgerð Draugabananna. Er landið þekkt fyrir að banna sýningar á myndum sem fjalla um drauga, bannaði landið meðal annars sýningar á myndinni Pirates of the Caribbean: Dead Man´s Chest.

Jafnframt vilja kínverskir embættismenn að lítið hafi farið fyrir upprunalegu myndunum og því hafi þeir talið að myndin yrði ekki uppá pallborðið hjá kínverskum áhorfendum.

Í myndinni leika þau Melissa McCarthy, Kristen Wiig, Kate McKinnon, Leslie Jones nýja draugabana.