„Draumabíllinn minn er gamall Willys jeppi. Ég sá svoleiðis á bílasölu fyrir mörgum árum og hef verið með hann á heil­ anum síðan. Fróðari menn hafa reyndar tjáð mér að Willys­ draumurinn sé frekar ópraktískur en heilinn fær ekki stjórn­ að því sem hjartað þráir. Mér skilst að mann eigi að dreyma um Tesla þessa dagana og það er vissulega spennandi kostur en þeir þurfa þá eiginlega að fara að búa til jeppa fyrir mig.“

Anna Marsibil Clausen, ritstjóri Monitor, er ein þriggja  sem lýsir draumabílnum sínum í samtali við Bílablað Viðskiptablaðsins. Blaðið fylgdi Viðskiptablaðinu í vikunni. Áskrifendur geta nálgast það hér að ofan undir liðnum tölublöð.

Jeep Wrangler í anda þeirra bíla sem Anna Marsibil dreymir um. Þetta módel hér er reyndar í nýri kantinum. Til eru mun eldri bílar sem gjarnan flokkast til hermannajeppa.