„Draumabíllinn er Mercedes Benz SLK sportbíll og að sjálfsögðu rauður því það er uppáhaldsliturinn. Hef setið í þessum bíl þótt ég hafi nú ekki fengið að keyra hann ennþá. H

ann er frekar stuttur og því þægilegur í innanbæjarakstri. Hann er líka með þaki sem hægt er að taka af og njóta þannig veðurblíðunnar í þau fáu skipti sem það er hægt á Íslandi. Þetta er mikill pæjubíll sem auðvelt er að falla fyrir.“

Í Bílum, sérblaði sem fylgdi nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins, er rætt við nokkra einstaklinga sem lýsa draumabílnum sínum. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð.