Vegagerðin hefur gefið út yfirlýsingu um að dregið verður úr viðhaldi og sumarþjónustu á vegakerfi landsins á þessu ári. Verður því minna um ofaníburð, heflun og rykbindingu en áður. Þá verður viðhaldi bundinna slitlaga haldið í lágmarki. Ástæðan er að töluvert minna fjármagn er ætlað til viðhalds og þjónustu vegakerfisins í ár en á síðustu árum.

Miðað við þær upphæðir sem er að finna í samgönguáætlun, sem er enn í meðförum Alþingis, verða framlög til viðhalds og þjónustu í ár um 10% lægri í krónum talið en í fyrra. Fjárveitingar höfðu þá lækkað bæði árin 2008 og 2009. Áætlað hefur verið að raunlækkun á framlagi til viðhalds og þjónustu frá árinu 2007 sé um 28%, að teknu tilliti til verðlags. Vegagerðin áætlar að fjárveitingar árin 2011 og 2012 nægi aðeins fyrir um 65% af áætlaðri þörf.

Fjárveitingar til viðhalds og reksturs malarvega eru nú um 60-65% af áætlaðri þörf en malarvegir eru ríflega 7700 km eða 60% af öllu vegakerfinu. Því þarf að takamarka  heflun og rykbindingu  nokkuð, en reynt verður eftir megni að halda umferðarmeiri vegum í þokkalegu ástandi og rykbinding við sveitabæi, þéttbýli og sumarhúsabyggð hefur ákveðinn forgang. Á fjallvegum landsins má búast við að eftir að þeir hafa verið opnaðir að vori verði lítið um heflun eftir það. Viðgerðir á bundnum slitlögum þarf að takmarka í meira mæli við hjólfarafyllingar, blettun og kantlagfæringu en minna verður um heilar yfirlagnir. Til lengri tíma litið mun ástand bundinna slitlaga versna og yfirborðið mun smám saman verða ósléttara.

Vegagerðin mun leita allra leiða til að skerða þjónustuna sem minnst. Leiðir til þess eru m.a. að forgangsraða verkefnum enn frekar og efla alla áætlanagerð og kostnaðareftirlit í tengslum við hana, því fyrir liggur að ekki verður unnt að halda óbreyttu þjónustustigi á vegakerfinu. Vegfarendur munu því miður í auknum mæli verða varir við versnandi ástand vega að því er segir í frétt frá Vegagerðinni.