Afgangur af vöruskiptum við útlönd nam 23,8 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins. Þetta er tveimur milljörðum minna en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Verðmæti vöruútflutnings nam 251,3 milljörðum króna á tímabilinu en innflutnings 227,5 milljörðum króna. Þar af nam verðmæti vöruinnflutnings 50,2 milljörðum króna en útflutnings 43,5 milljörðum króna og voru voruskipti því óhagstæð um 6,7 milljarða sem er 1,9 milljörðum minna en í maí í fyrra.