Fjárfestingar á evrusvæðinu drógust saman á þriðja ársfjórðungi síðasta árs, en nýjar tölur voru birtar í dag af hagstofu Evrusvæðisins, Eurostat .

Fjárfestingar á þriðja ársfjórðungi voru 22,1, samanborið við 22,4% á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðarhlutdeild fyrirtækja lækkaði einnig lítillega á ársfjórðungnum. Hagnaðarhludeildin á þriðja ársfjórðungi var 39,7%, en hún hafði verið 39,8% á fyrri ársfjórðungi.