Icelandair flutti 185 þúsund farþega í millilandaflugi í október. Þetta voru 8% fleiri farþegar en flugu með vélum félagsins í október í fyrra. Fram kemur í flutningatölum Icelandair að framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 78,1% samanborið við 80,6% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 17,8%.

Þá kemur fram í flutningatölunum að farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 26 þúsund í október og fækkaði um 8% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 3% samanborið við október 2012. Sætanýting nam 71,5% og lækkaði um 5,2 prósentustig á milli ára.

Þá fækkaði seldum blokktímum í leiguflugi um 11% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 2% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 61,9% samanborið við 67,6% í október í fyrra.