Skipti, móðurfélag Símans, tapaði 6 milljónum króna á fyrri hluta árs 2010. Tap á samatímabili í fyrra var 2.088 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 3,7 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Í fyrra nam hann 4,2 milljörðum króna á sama tímabili.

Sala Skipta nam 19,6 milljörðum króna og dróst saman um 0,6% á milli ára. Eigið fé Skipta er 24,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall félagsins er 21,2%

Í tilkynningu frá félaginu segir að Skipti hafi selt upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT í júlí síðastliðnum. Áhrif sölunnar muni að mestu koma fram á seinni helmingi ársins, en þá eru 3,3 milljarðar króna söluhagnaður færður til bókar.

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, segir að félagið muni í kjölfar sölunnar greiða hraðar niður skuldir en áætlað var, alls um 8,5 milljarða króna af lánum félagsins. Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum námu 54,2 milljörðum króna í lok júní.

„Það er afar jákvætt að sjá þann viðsnúning sem hefur orðið á afkomu félagsins milli ára en hann skýrist fyrst og fremst af betri niðurstöðu fjármagnsliða. Afkoman nú sýnir hversu traustur undirliggjandi rekstur félagsins er. Skipti hafa selt Sirius IT og mun 3,3 milljarða söluhagnaður bókfærast á seinni hluta ársins. Skipti munu í kjölfar sölunnar greiða skuldir niður hraðar en áætlað var, alls um 8,5 milljarða króna af lánum félagsins. Skipti áttu að auki í lok júní um 16,6 milljarða króna í reiðufé, svo félagið hefur umtalsvert svigrúm til að greiða niður skuldir,“ segir Brynjólfur í tilkynningu.