Umferðin í nóvember 2008 var ríflega 6 prósentum minni en í nóvember í fyrra, sé tekið mið af 14 talningarstöðum á Hringvegi.

Þetta er sama þróun og mátt hefur sjá mest allt þetta ár þótt umferðin í nóvember hafi ekki dregist jafnmikið saman og í október.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar kemur fram að þrátt fyrir þennan samdrátt í umferðinni er hún eigi að síður meiri en hún var í nóvember 2005 og 2006.

Á vef Vegagerðarinnar er hægt að sjá töflu, graf og stöplarit um hlutfallslega breytingu meðalumferðar á talningarstöðunum.