Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í vikunni eftir að hafa aukist í vikunni á undan.

Síðustu sjö vikur hafa verið nokkuð rokkandi í veltu en veltan á einni viku hefur verið á bilinu 860 milljónir króna upp í tæpar 2.900 milljónir króna. Breytingin í þessari viku er þó sú minnsta sem verið hefur síðustu vikur.

Þannig nam veltan í vikunni 1.807 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.940 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 7% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkaði lítillega í vikunni og er nú 1.995 milljónir króna. Fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um rúmar 100 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú aukist um 30% á milli ára en hafði á sama tíma í fyrra hækkað um 40% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkaði hins vegar um 70 milljónir króna á milli vikna í vikunni og nemur nú 1.737 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.653 milljónir króna á viku og hefur aukist um 17% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 76 kaupsamningum þinglýst í vikunni, líkt og í síðustu viku. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári en 60 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 23,8 milljónum króna í vikunni, samanborið við 25,5 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna en 28,2 milljónir króna það sem af er ári.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 28 milljónir króna á hvern samning.