Ákveðið hefur verið að auka dreifingu Bændablaðiðsins með því að dreifa blaðinu á 11 nýjum stöðum. Þar er um að ræða verslanir Krónunnar sem eru átta talsins á höfuðborgarsvæðinu en auk þess á Akranesi, Reyðarfirði og í Vestmannaeyjum.

Í frétt á vef Bændablaðsins kemur fram að þar getur fólk nálgast blaðið í þar til gerðum stöndum sem minna á sveitina eins og hún var. Blaðið er nú prentað í 19.000 eintökum og dreift frítt nn á hvert lögbýli, auk þess sem það liggur frammi í flestum þéttbýliskjörnum landsins. Með breytingunni nú hefur upplagið verið aukið um 2.000 eintök. Blaðið kemur út hálfsmánaðarlega.