Bilun í prentsmiðju olli því að Viðskiptablaðinu var ekki dreift til áskrifenda í morgun. Einhverjir munu fá blaðið seinna í dag en ljóst er að dreifing klárast ekki að fullu fyrr en í fyrramálið.

Áskrifendur geta nálgast rafrænt eintak af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð.