Drífa Sigurðardóttir hefur bæst í eigendahóp Attentus en hún hóf störf hjá félaginu sem ráðgjafi árið 2017. Eigendur Attentus eru nú fimm talsins, Guðríður Sigurðardóttir, Inga Björg Hjaltadóttir, Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, Sigríður Þorgeirsdóttir auk Drífu.

Árný Elíasdóttir, sem var einn af stofnendum Attentus og meðeigandi, hefur selt hlut sinn í fyrirtækinu en mun áfram sinna ráðgjafastörfum fyrir Attentus.

Drífa kom til Attentus frá ISAVIA þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri flugleiðsögu- og flugvallarsviðs. Hún starfaði áður sem starfsmannastjóri hjá Mannviti í níu ár og sem deildarstjóri launa- og kjaraþróunar hjá Eimskip í þrjú ár.

Á árunum 1997-2004 starfaði Drífa sem ráðgjafi í mannauðsmálum hjá PricewaterhouseCoopers. Hún tók þátt í stofnun Mannauðs, félags mannauðsstjóra á Íslandi, sat í stjórn Birtu lífeyrissjóðs í fimm ár og er nú formaður tilnefningarnefndar í fasteignafélaginu Eik. Drífa lauk M.Sc. í opinberri stefnumótun frá Strathclyde University, Glasgow og B.A í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Buðu mannauðsstjóra til leigu

Attentus veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf um allt sem snýr að rekstri út frá á áherslum mannauðsstjórnunar. Fyrirtækið þróaði meðal annars viðskiptalausnina „mannauðsstjóri til leigu”, sem það hlaut hvatningarverðlaun FKA fyrir árið 2012, og nýta fjölmörg fyrirtæki sér þá þjónustu. Hjá Attentus eru nú 11 starfsmenn, þar af átta ráðgjafar og tveir sérfræðingar, sem sinna verkefnum á þessu sviði.

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir , stjórnarformaður Attentus þakkar Árnýju fyrir brautryðjendastarf á sviði fræðslu og starfsþróunar á vinnumarkaði. „Hún er meðal frumkvöðla á þessu sviði á Íslandi og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Attentus. Nú er komið að ákveðnum tímamótum hjá henni, en hún mun einbeita sér að ráðgjafaverkefnum fyrir Attentus,“ segir Ingunn Björk sem segir mikinn feng að því að fá Drífu inn í hópinn á þessum tímamótum.

„Hún hefur verið leiðandi í uppbyggingu ráðgjafar Attentus vegna jafnlaunavottunar á undanförnum árum og hefur hún og hennar teymi komið að undirbúningsferli vottunar hjá um þriðjungi þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið vottun. Þekking Drífu og reynsla mun því nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.“