Starfsmaður Háskóla Íslands sem grunaður er um fjársvik var fjármálastjóri skólans. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. Maðurinn er talinn hafa dregið sér 8-9 milljónir frá skólanum síðan árið 2007.

Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir: „Við innra eftirlit hjá Háskóla Íslands hefur grunur vaknað um að hátt settur maður í miðlægri stjórnsýslu skólans hafi misfarið með fé í eigin þágu á rúmum fjórum árum. Starfsmaðurinn hefur þegar látið af störfum. Að ósk Háskóla Íslands kannaði Ríkisendurskoðun málið frekar. Í ljósi niðurstöðu Ríkisendurskoðunar hefur rektor Háskóla Íslands óskað eftir að lögregla rannsaki málið. Ekki leikur grunur á að aðrir starfsmenn háskólans tengist málinu.“