Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Nýherja, hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Tekur hún sæti í stjórninni í tengslum við breytingar á skipulagi fyrirtækisins sem kynntar voru á dögunum.

Dröfn hefur starfað hjá Nýherja sem mannauðsstjóri frá því í febrúar 2013 og hefur áralanga reynslu á vettvangi mannauðsmála. Áður en hún kom til Nýherja starfaði hún sem mannauðsstjóri hjá Fjármálaeftirlitinu en starfaði frá 2009-2011 sem fræðslustjóri Arion banka, sem mannauðsráðgjafi hjá Straumi fjárfestingabanka frá 2007-2009 og þar áður sem fræðslustjóri og mannauðsráðgjafi á Menntasviði Reykjavíkurborgar.

Hún lauk B.A. prófi í sálfærði frá Háskóla Íslands og framhaldsnámi í sálfræði með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði frá Háskólanum í Giessen í Þýskalandi.