Kauphallarvikunni lauk í dúr í Asíu en helstu hlutabréfavísitölur álfunnar, Nikkei og Hang Seng, hækkuðu báðar í nótt. Sú fyrrnefnda um 1% en það sem af er degi hefur Hang Seng hækkað um 3,2%. Enn er reyndar rúm hálf klukkustund í að kauphöllin í Hong Kong loki og því gæti Hang Seng hækkað enn frekar eða lækkað ef út í það er farið.