DV hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Jóni Þorsteini Jónssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Byrs, gegn útgáfufélagi blaðsins, ritstjóra og fréttastjóra. Þetta kemur fram á vef DV.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu í dag að hinir stefndu skyldu greiða Jóni Þorsteini samtals tvær milljónir króna vegna meiðyrða í frétt sem dómurinn segir að hafi verið röng. Fréttin fjallaði um meinta fjármagnsflutninga Jóns Þorsteins þrátt fyrir gjaldeyrishöft.

„Af öllu því sem fram er komið i málinu verður ekki betur séð en að umstefnd ummæli séu í öllum meginatriðum ósönn. Það sem fram kemur í yfirlýsingu stefnanda til fjölmiðla, í kjölfar umfjöllunar stefndu, á sér á hinn bótginn stoð bæði í gögnum málsins og fyrir dómi,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Þurfa að greiða 700.000 í miskabætur og birtingu á dómnum.

Ingi Freyr Vilhjálmsson og Reynir Traustason eru dæmdir til að greiða 300.000 krónur í miskabætur og 400.000 krónur til að standa straum af birtingu dómsins og forsendna hans í tveimur dagblöðum, Morgunblaðinu og Fréttablaðinu, og tveimur netmiðlum, www.visir.is og www.mbl.is. Einnig skulu þeir greiða málskostnað upp á 1,3 milljónir.

DV ehf., skal birta forsendur og dómsorð dóms þessa í næsta tölublaði DV og í næstu útgáfu www.dv.is, að viðlögðum dagsektum að fjárhæð 50.000 krónur, frá þeim útgáfudögum að telja.

Ummælin sem dæmd voru dauð og ómerk

Dómari dæmdi eftirfarandi ummæli á forsíðu blaðsins 12. og 13. nóvember í fyrra dauð og ómerk. Þau voru:

  • Laumaði stórfé úr landi.
  • Dulbúið sem lánaviðskipti.
  • Hundruð milljóna millifærð.

Þá voru eftirtalin ummæli á blaðsíðu 8 í blaðinu 12.-13. nóvember dæmd dauð og ómerk:

  • Jón Þorsteinn Jónsson hefur staðið í hundruð milljóna fjármagsflutningum frá Íslandi á síðastliðnum árum í tráissi við gjaldeyrishaftalögin
  • Hefur flutt hundruð milljóna úr landi.
  • Þegar fjármunirnir eru komnir frá Íslandi og inn á erlenda bankareikninga greiðir lántakandinn peningana aftur til lánveitandas.
  • Jón Þorsteinn Jónsson fyrrverandi stjórnarformaður Byrs og einn af erfingjum Nóatúns á sínum tíma, hefur flutt mörg hundruð milljónir króna í erlendum gjaldeyri frá Íslandi á þessu ári og því síðasta.
  • Eini tilgangurinn með viðskiptunum er að koma gjaldeyri út úr landinu í trássi við höftin þó svo að viðskiptin sé(u) skilgreind sem lán.

Dómurinn í heild sinni.