Forsvarsmenn DV segjast engin lög hafa brotið með því að láta sérblað um bjór fylgja helgarblaði DV í lok síðasta mánaðar. Greint er frá þessu á fréttavef RÚV .

Greint var frá því í byrjun vikunnar að fjölmiðlanefnd hefði sent DV erindi þar sem krafist er skýringa á útgáfu auglýsingablaðs um bjór sem fylgdi blaðinu þann 27. febrúar síðastliðinn. Málið var tekið upp að frumkvæði fjölmiðlanefndar.

Steinn Kári Ragnarsson, framkvæmdastjóri DV, segir í samtali við RÚV að hjá blaðinu telji menn sig ekki hafa brotið nein lög. Segist hann jafnframt vona að fjölmiðlanefnd hafi sett sig í samband við aðra prentmiðla sem hefðu verið með umfjöllun um áfenga drykki, þar sem eitt yrði yfir alla að ganga.