DV kemur að öllum líkindum ekki út á morgun vegna ólgu meðal starfsmanna að sögn Ingibjargar Kjartansdóttur, aðstoðarritstjóra DV. Frá þessu var greint í  hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

Starfsmenn DV kröfðust þess á starfsmannafundi í morgun að ritstjórinn, framkvæmdastjóri og ritstjórnin yrðu beðin opinberlega afsökunar á framkomu nýkjörinnar stjórnar DV.

Einnig krefjast starfsmenn að rannsókn á faglegu starfi og rekstri félagsins yrði látin niður falla. Ingibjörg sagði að enginn starfsmaður muni vinna fyrr en svör hafa fengist við kröfunni.

DV kemur út tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum.