Facebook
Facebook
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Kostnaður við að auglýsa á Facebook hefur vaxið hratt. Stór fyrirtæki eru byrjuð að færa auglýsingar sínar úr sjónvarpi og prentmiðlum á félagsnetið Facebook. Auglýsingaverð sem háð er því hve oft auglýsingin er skoðuð (e. "cost per click) hefur hækkað um 74% frá því fyrir ári hjá fjórum stærstu fjölmiðlamörkuðum heims.

Það auglýsingaverð sem greitt er fyrir hverjar þúsund birtingar hækkaði um 45% í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi á öðrum ársfjórðungi 2011.

Simon Mansell, framkvæmdarsstjóri TBG Digital sem sérhæfir sig sjálfstæðri markaðssetningu fyrirtækja í félagslegum fjölmiðlum, segir vöxtinn vera þann mesta sem hann hafi séð síðan auglýsingar fóru að birtast á Google.