Eitt af stærstu verkefnum Landsnets á síðasta ári var viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3. Strengurinn sem er að stærstum hluta sæstrengur bilaði í byrjun apríl 2017 í kjölfar byggingu nýs tengivirkis í Vestmannaeyjum og spennuhækkunar á afhendingu raforku í 66 kV.

Um var að ræða dýrustu viðgerð í sögu Landsnets en viðgerðin kostaði um 630 milljónir króna, en bilunin var staðsett u.þ.b. 3 km norðan við Eyjar á 50 m dýpi. Fékk fyrirtækið kapalskipið Isaac Newton, sérhæft viðgerðarskip, til aðstoðar við viðgerðina. Viðgerðin tók 14 daga og var fjarstýrður kafbátur notaður til að klippa strenginn í sundur.

Staðbundinn veikleiki í einangrun strengsins

Ekki var vitað hvað olli biluninni og litlir ytri áverkar sýnilegir, en sá hluti strengsins sem innihélt bilunina var sendur á rannsóknarstofu EA Technology á Englandi til frekari greiningar. Brunaáverkar voru á bútnum vegna skammhlaupsins sem varð í biluninni og því ekki hægt að segja nákvæmlega til um orsökina.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu hins vegar fram á ákveðið magn óæskilegra agna í einangruninni næst brunanum og eru mestar líkur taldar á því að bilunina megi rekja til þeirra. Vorið 2013 var strengurinn framleiddur í verksmiðju ABB í Svíþjóð. Strengurinn var prófaður samkvæmt stífustu kröfum að framleiðslu lokinni í verksmiðju, m.a. með háspennuprófi.

Rekstur á strengnum hefur gengið vel frá því að viðgerð lauk og ekki hafa komið upp nein önnur frávik. Ekkert bendir til annars en að um staðbundinn veikleika hafi verið að ræða og að strengurinn sé eftir viðgerð í góðu ásigkomulagi.