Rafmyntin Dogecoin er nú orðin verðmætari en alþjóðleg fyrirtæki á borð við Marriott International og Ford Motor eftir rúmlega 450% hækkun í síðastliðinni viku. Markaðsvirði rafmyntarinnar er orðið rúmlega 50 milljarðar Bandaríkjadala.
Dogecoin var stofnuð árið 2013 af tveimur hugbúnaðarverkfræðingum eftir að annar þeirra hafði í gamni spáð hver yrði næsta stóra rafmyntin.
Verðgengi Dogecoin hefur hækkað um 8.100% í ár sem er tvöfalt hærra en hækkun S&P 500 vísitölunnar, með arðgreiðslum innföldum, frá árinu 1988, að því er kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal .
Rafmyntin hækkaði úr rúmlega 0,07 í 0,40 dali á síðustu átta dögum. Netverjar binda vonir við að þetta mikla skrið haldi áfram og hafa lýst deginum í dag, 20. apríl sem „Doge day“, en þeir vonast til að koma gengi Dogecoin yfir einn Bandaríkjadal fyrir lok dagsins.
Þessi gífurlega hækkun á gengi myntarinnar undanfarna daga minnir á Gamestop málið sem hófst í lok janúar síðastliðinn. Hlutabréf tölvu- og raftækjaverslunarkeðjunnar fimmfölduðust í verði á einungis tveimur dögum eftir að dagkaupmenn á spjallborðinu r/wallstreetbets á Reddit ákváðu að keyra upp verðið eftir að vogunarsjóðir byrjuðu að skortselja bréfin.
Bæði atvikin undirstrika umfang og áhrif sem almennir fjárfestir geta haft á markaðsverð, sér í lagi eftir tilkomu verðbréfavettvanga án þóknana líkt og Robinhood og eToro.
Í byrjun febrúar tvöfaldaðist gengi Dogecoin eftir að Elon Musk, stofnandi Tesla, kallaði hana „rafmynt fólksins“ á Twitter, að því er BBC greindi frá á sínum tíma.
ur welcome pic.twitter.com/e2KF57KLxb
— Elon Musk (@elonmusk) February 4, 2021