Í næsta mánuði mun uppskeruhátíð íslenskra hönnuðu, HönnunarMars, enn á ný dreifa úr sér um borgina listunnendum til ómældrar gleði. DesignMatch, sem er hluti hátíðarinnar, og þangað mæta íslenskir hönnuðir erlendum kaupendum og framleiðendum á kaupstefnu. Þar gefst hönnuðum tækifæri á beinum samskiptum við aðila sem annars getur reynst erfitt að ná til.
Að sögn skipuleggjenda er samtal hönnuðar og kaupanda á deginum upphafið að mikilvægum tengslum sem með áframhaldandi vinnu og viðhaldi getur þróast í dýrmætt samstarf. Viðburðurinn er skipulagður af Hönnunarmiðstöðinni, í samstarfi við Arion banka og fer fram á föstudeginum á HönnunarMars.
Risar í hönnunarheiminum
Fyrirtækin sem hafa boðið komu sína í ár eru ekki af verri endanum og mörgum íslendingum vel kunn. Má þar meðal annars nefna Kähler sem helst hefur orðið frægt fyrir vasa sína, Menu sem er danskt hönnunarfyrirtæki sem hefur verið að selja vörur sínar í verslanir víðsvegar um heiminn, Norr 11 sem er með verslanir í Berlín, London, Reykjavík og Kaupmannahöfn, Norman Copenhagen og finnska fyrirtækið Lokal.
Elín Hrund Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöðinni, segir DesignMatch einstakt tækifæri fyrir íslenska hönnuði til að komast í samband við erlenda framleiðendur og kaupendur.
Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð . Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda vöxtum óbreyttum. Ákvörðunin kom greiningaraðilum ekki á óvart.
- Formaður VR segir að stjórnvöld hafi stuttan tíma til að efna loforð sín í íbúðarmálum ella séu forsendur kjarasamninga brotnar.
- Fjallað er um ársuppgjör stoðtækjaframleiðandans Össurar fyrir árið 2016.
- Borgarstjóri telur óheftan Airbnb leigumarkað leiða af sér neikvæð ytri áhrif á íbúðamarkaði.
- Umfjöllun um gríska hagkerfið sem fast er í skuldafeni.
- Úttekt á rekstrarumhverfi flugfélaga á Íslandi, þar sem aukin samkeppni ríkir.
- Ítarlegt viðtal við Óla Björn Kárason, formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
- Farið er á stúfana og forvitnast um hvaða bækur stóðu upp úr í fyrra hjá áhrifafólki í íslensku samfélagi.
- Viðtal við Guðmund Andra Skúlason, sem hefur unnið að hönnun hugbúnaðarlausnar, sem metur söluvirði fasteigna.
- Rætt er við Ástu Sigríði Fjeldsted, sem var nýverið ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
- Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs sem skrifar um óþarfar ríkisstofnanir.
- Óðinn tekur fyrir framleiðni í Þýskalandi.