Búið er að reikna út hvað það kostar að sleikja sólina fyrir sænska ferðalanga. Verð á gistingu, matsölustöðum, leigubílum og fleira er deilt niður á þá tíma sem sól skín á hefðbundnum júlídegi á nokkrum vinsælum áfangastöðum. Fjallað er um málið á túristi.is .
Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar kemur í ljós að ferðamenn borgar næstum þrisvar sinnum meira fyrir hverja sólarstund í Reykjavík en í Lissabon, höfuðborg Portúgals. Dýrust eru hún hins vegar í Sviss.
Í Lissabon skín sól að meðaltali um 85 tíma á viku og kostar stundin því um 1300 krónur. Hinum megin á skalanum er Genf í Sviss en þar kostar sólarstundin rúmar 5 þúsund krónur. Af þeim 36 borgum sem voru skoðaðar þá má einnig finna Reykjavík. 39 sólarstundir eru að jafnað á viku samkvæmt þessari greiningu í Reykjavík og kostar stundin um 2600 krónur.
Svona lítur listinn út samkvæmt könnunni:
- Lissabon: 1342 krónur
- Sharm El-Sheikh: 1365 krónur
- Búdapest: 1549 krónur
- Aþena: 1568 krónur
- Antalya: 1605 krónur
- Tallinn: 1623 krónur
- Riga: 1679 krónur
- Madríd: 1679 krónur
- Istanbúl: 1826 krónur
- Barcelona: 2011 krónur
- Prag: 2066 krónur
- Marbella: 2141 krónur
- Flórens: 2270 krónur
- Róm: 2325 krónur
- Dubrovnik: 2325 krónur
- Nice: 2381 krónur
- Berlín: 2417 krónur
- Los Angeles: 2473 krónur
- Palma: 2547 krónur
- Dubai: 2602 krónur
- Vín: 2639 krónur
- Helsinki: 2841 krónur
- Stokkhólmur: 3026 krónur
- Munchen: 3100 krónur
- Miami: 3137 krónur
- Kaupmannahöfn: 3229 krónur
- Feneyjar: 3323 krónur
- Dublin: 3561 krónur
- París: 3561
- Reykjavík: 3598 krónur
- New York: 3690 krónur
- Monte Carlo: 3930 krónur
- London: 4004 krónur
- Amsterdam: 4022 krónur
- Osló: 4096 krónur
- Genf: 5203 krónur