Hugh Aitken, framkvæmdastjóri Easy Jet, segir flugfélagið hafa stækkað markaðinn. Með komu félagsins til landsins er fjölbreyttari hópur að ferðast til landsins.

Easy Jet hóf að fljúga reglulega til Íslands í mars 2012 og á næstu 12 mánuðum stefnir félagið á að fljúga með 160.000 farþega til og frá Íslandi.

VB Sjónvarp ræddi við Hugh Aitken. Í næsta tölublaði Viðskiptablaðsins verður nánar rætt við Aitken.