Flugfélagið EasyJet hefur fækkað ferðum sínum til Íslands. Túristi greinir fyrst frá. Stjórnendur fyrirtæksins segja að megin ástæðan fyrir því sé vegna minni eftirspurnar sökum hás verðlags. British Airways og Wizz Air eru aftur á móti sögð fjölga ferðum frá London til Íslands í vetur.
Túristi segir EasyJet hafa dregið úr flugi til Keflavíkurflugvallar þrátt fyrir brotthvarf WOW af markaðnum og að fyrirhugað sé að félagið fækki ferðum enn frekar á næstunni. Þannig muni áætlunarferðum félagsins til Keflavíkur fækka um 17% í janúar og um 10% í febrúar.
Munar mestu um að félagið ætlar ekki að fljúga hingað frá London Stansted, auk þess sem ekki er hægt að bóka neitt flug til Íslands í vetur með flugfélaginu frá Basel eða Genf.
„Við höfum dregið úr framboði vegna minnkandi eftirspurnar sem skrifast á hækkandi verðlag á Íslandi,” hefur Túristi eftir Andy Cockburn, talsmanni EasyJet.