Breska flugfélagið easyJet ætlar að hefja beint áætlunarflug á milli Íslands og Basel í Sviss í apríl á næsta ári. Stefnt er á að fljúga tvisvar á viku, á miðvikudögum og laugardögum fram í september. Ódýrasti flugmiðinn verður í kringum 6.295 krónur aðra leiðina með sköttum.

Fram kemur í tilkynningu frá easyJet að flugleiðin til Basel sé sú fimmta héðan. Hinar flugleiðirnar eru frá Keflavíkurflugvelli til London, Manchester og Edinborgar auk þess sem flogið verður til Bristol eftir nokkrar vikur.