Bandaríska fjárfestingafélagið Eaton Vance hefur selt 1,2% hlut í fasteignafélaginu Regin , en söluverðið nemur 435 milljónir króna miðað við markaðsgengi hluta í Regin.

Eftir viðskiptin á Eaton 86,4 milljónir hluta eða 4,73% hlut í Regin en átti fyrir viðskiptin 108,4 milljónir hluta eða 5,93% í félagiðnu.

Markaðsgengi Regins nemur 19,75 krónur á hlut, og hefur lækkað um 22,9% það sem af er þessu ári.