Vogunarsjóðurinn Eaton Vance Management hefur aukið við hlut sinn í Sjóvá-Almennum og stendur nú eignarhluturinn í 5,9% að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Jók sjóðurinn við hlut sinn um rúma 9,2 milljón hluti, sem miðað við lokagengi dagsins upp á 16,25 krónur hver hlutur, hefur kostað tæplega 150 milljónir, en eins og Viðskiptablaðið hefur áður greint frá hefur sjóðurinn verið að auka hlut sinn umtalsvert í skráðum félögum hérlendis.