eBay hefur samþykkt að kaupa Braintree greiðsluþjónustuna fyrir 800 milljónir dala. Kaupin eru gerð til þess að efla auka viðskipti PayPal á farsímamarkaðnum. Wall Street Journal greinir frá þessu en blaðið hafði fyrr í vikunni greint frá því að undirbúningur að kaupunum gengi vel.

Snjallforritið sem Braintree hannaði heitir Venmo. Með því getur fólk greitt í gegnum farsíma sína. Talið er að með notkun þessa forrits geti aukið viðskipti PayPal um milljónir dala.

Það var WallStreet Journal sem greindi frá.