Rekstrartekjur Kögunar jukust um 1.077 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins eða 33% frá sama tímabili 2006. EJS hf. bætist við samstæðuna þann 1. mars 2006.

EBITDA af áframhaldandi starfsemi er 535 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins, eykst um 22% frá sama tímabili í fyrra.

Framlegð jókst um 112 milljónir króna eða 12% frá sama tímabili árið 2006 og var nokkuð umfram áætlanir, ef marka má tilkynningu.

Hagnaður nýrrar samstæðu fyrir skatta er 1.080 milljónir króna, hagnaður eftir skatta er 876 milljónir króna.