Edda Björk Agnarsdóttir og Kristrín Auður Viðarsdóttir hafa gengið til liðs við Íslandssjóði. Edda Björk tekur við starfi áhættustjóra Íslandssjóða og Kristrún Auður fer fyrir viðskiptaþróun félagsins.

Edda Björk Agnarsdóttir hefur tekið við starfi áhættustjóra Íslandssjóða hf. Edda Björk er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Íslandssjóðum frá árinu 2009 en áður starfaði hún hjá Straumi Fjárfestingabanka, JP Morgan Asset Management í London og hjá bandaríska sjóðastýringarfyrirtækinu PIMCO í München.

Kristrún Auður Viðarsdóttir hefur gengið til liðs við Íslandssjóði og fer fyrir viðskiptaþróun félagsins. Kristrún er tölvunarfræðingur með meistaragráðu í upplýsingakerfum og MBA frá Boston University. Kristrún hefur undanfarin ár verið búsett í Hollandi þar sem hún sinnti ráðgjafaverkefnum í upplýsingatækni en áður starfaði Kristrún á skrifstofu bankastjóra Íslandsbanka, leiddi viðskiptaþróun hjá VÍB, eignastýringu Íslandsbanka og starfaði hjá Citigroup Wealth Management í New York og London.

Edda Björk og Kristrún Auður eru báðar með löggildingu í verðbréfamiðlun.

Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, segir við tilefnið: „Það er alltaf gleðilegt að fá öfluga liðsmenn inn í okkar sterka hóp. Það er sérlega ánægjulegt að fá tvær konur í stjórnendahópinn og auka þar með fjölbreytnina. Reynslan sýnir okkur að bestur árangur næst í blönduðum hópi þar sem ólík sjónarmið fá að njóta sín. Við fögnum þessu því mjög, bæði strákarnir og stelpurnar“.

Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins og er að fullu í eigu Íslandsbanka. Íslandssjóðir bjóða sparifjáreigendum upp á breitt úrval innlendra og erlendra sparnaðarkosta en 29 verðbréfa- og fjárfestingarsjóðir eru reknir af félaginu. Starfsmenn Íslandssjóða eru 15 talsins, fimm konur og tíu karlar.