Framtakssjóðurinn Edda slhf., sem rekinn er af verðbréfafyrirtækinu Virðingu, hefur náð samkomulagi við núverandi eigendur Marorku um kaup á hlut í félaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að þýski fjárfestingarsjóðurinn Mayfair verði áfram stærsti hluthafi Marorku, en fjárfestingu Eddu sé ætlað að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins bæði á Íslandi og erlendum mörkuðum.

Marorka var stofnað árið 2002 af Jóni Ágústi Þorsteinssyni. Fyrirtækið þróar, framleiðir og selur orkustjórnunarkerfi og hugbúnað fyrir stærri skip og skipaflota. Vörur félagsins gera skipafélögum kleift að minnka olíunotkun og þar af leiðandi draga úr mengun og spara umtalsverða fjármuni.

„Markaður fyrir lausnir sem stuðla að sjálfbærni og bættri nýtingu á orku og minni mengun stækkar hratt og því eru mikil sóknarfæri fyrir þekkingarfyrirtæki á borð við Marorku sem býr að góðu, vel menntuðu og reyndu starfsfólki. Með EDDU sem öflugan hluthafa í Marorku fáum við tækifæri til að byggja upp enn öflugri starfsemi bæði á Íslandi og erlendis. Við erum afar ánægð með það og stolt yfir að hafa fengið EDDU með inn í hluthafahópinn.“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, stjórnarformaður Marorku.

Umsvifin aukist töluvert

Umsvif Marorku hafa aukist mikið undanfarin ár en tekjur félagsins hafa að meðaltali vaxið um 30% á milli ára síðustu þrjú ár. Um 60 manns starfa hjá Marorku, flestir við tækni- og hugbúnaðarmál á Íslandi.

„Við erum mjög ánægð með að bætast í hluthafahóp Marorku og styðja þannig við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins. Við sjáum mikil tækifæri í vaxandi eftirspurn eftir þeirri vöru og þjónustu sem Marorka býður viðskiptavinum um allan heim,“ segir Margit Robertet, framkvæmdastjóri Eddu slhf.

Edda slhf. er fimm milljarða króna framtakssjóður í rekstri verðbréfafyrirtækisins Virðingar hf.  Hluthafar eru rúmlega 30 talsins og samanstanda af lífeyrissjóðum ásamt öðrum fagfjárfestum. Fjárfestingarstefna sjóðsins er að fjárfesta í óskráðum félögum með trausta rekstrarsögu, öflugum stjórnendum og sterkri markaðsstöðu. Sjóðurinn var stofnaður árið 2013 en fyrir á hann hluti í Securitas, Domino´s og Íslandshótelum.