Edda Heiðrún Backman bætist við á lista yfir þá sem fá heiðurslaun á næsta ári, samkvæmt ákvörðun Alþingis. Á listanum eru því 29 listamenn og fær hver og einn þeirra 1,8 milljónir króna á árinu frá ríkissjóði.

Aðrir á heiðurslistanum eru: Atli Heimir Sveinsson, Ásgerður Búadóttir, Erró, Fríða Á. Sigurðardóttir, Guðbergur Bergsson, Guðmunda Elíasdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Hannes Pétursson, Herdís Þorvaldsdóttir, Jóhann Hjálmarsson, Jón Nordal, Jón Sigurbjörnsson, Jón Þórarinsson, Jónas Ingimundarson, Jórunn Viðar, Kristbjörg Kjeld, Kristján Davíðsson, Magnús Pálsson, Matthías Johannessen, Megas, Róbert Arnfinnsson, Thor Vilhjálmsson, Vigdís Grímsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þráinn Bertelsson og Þuríður Pálsdóttir.