Edda Sif Pálsdóttir, fyrrverandi íþróttafréttamaður á RÚV, hefur verið ráðin á fréttastofu 365 miðla, samkvæmt heimildum VB.is. Ekki hefur verið ákveðið hvaða verkefni Edda Sif tekur að sér. Það er hvort hún verði í kvöldfréttum eða Íslandi í dag eða öðrum verkefnum.

Þá hefur Sunna Karen Sigurþórsdóttir einnig verið ráðin á fréttastofuna sem og Snærós Sindradóttir. Snærós Sindradóttir vakti meðal annars athygli fyrir beitta pistla sem hún skrifaði á Smuguna á meðan sá vefur var starfræktur.

María Lilja Þrastardóttir, sem hefur starfað á 365 miðlum í tæpt ár, lét af störfum í gær.

Viðbót kl. 13:40
Rétt er að árétta að Edda Sif hefur ekki enn gert skriflegan ráðningarsamning við 365 miðla.