Trúverðugleiki herbergisþernurnar sem kærði Dominique Strauss-Kahn fyrir kynferðislega áreitni og nauðgunartilraun hefur vakið upp efasemdir.  The New York Times greindi frá þessu í morgun.

Blaðið hefur eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar í New York borg að saksóknarar leggi ekki trúnað í sögu herbergisþernunnar og gruni hana um ósannsögli.

Strauss-Kahn er í haldi í þriggja hæða raðhúsi við Franklin Street 153 í New York borg.