EFLA er eitt sjö verkfræðistofa sem hefur verið valin inn í 13 milljarða rammasamning við norsku vegagerðina, Statens vegvesen. Alls buðu þrettán aðilar í samninginn, þar á meðal allar stærstu verkfræðistofur Norðurlandanna, að því er fram kemur í tilkynningu frá EFLU.

„Um er að ræða afar umfangsmikinn rammasamning í Noregi um almenna ráðgjöf og verkfræðiþjónustu í samgöngutengdum verkefnum t.d. deiliskipulagi, hönnun og gerð útboðsgagna ásamt eftirliti með framkvæmdum á byggingarstigi. Samningurinn gildir næstu tvö árin með möguleika á framlengingu til tveggja ára," segir í tilkynningunni.

„Áætlað umfang samningsins er að hámarki 880 milljónir norskra króna á 4 árum, eða um 13 milljarðar íslenskra króna, sem deilist niður á þau fyrirtæki sem samið var við. Fyrir okkur í EFLU gæti því verið um að ræða rammasamning upp á allt að 30 milljónir norskra króna á ári, sem er tæplega hálfur milljarður íslenskra króna, í fjögur ár.“ segir Ragnar Jónsson, framkvæmdastjóri EFLU AS í Noregi.

Bent er á að mikið átak sé framundan í innviðauppbyggingu hjá Statens vegvesen næstu árin „Í mars lagði norska ríkið fyrir samgönguáætlun fyrir næstu 12 ár sem gerir ráð fyrir fjárframlagi upp á tæplega 1.100 milljarða norskra króna til samgöngumála.“ segir Ragnar. Norska ríkið ráðleggur að byggja upp vegi, brýr, göngustíga, jarðgöng og önnur ný mannvirki sem og að viðhalda núverandi innviðum.

Með fleiri samgönguverkefni í Noregi

Auk ofangreinds rammasamnings við Statens vegvesen gerði EFLA nýverið rammasamning í samgöngumálum við fylkið Vestfold og Telemark, sem er í suðurhluta Noregs með um 420 þúsund íbúa. Samningurinn felur í sér ráðgjafar- og hönnunarverkefni á sviði samgangna, t.d. gerð frumdraga, deiliskipulaga, for- og fullnaðarhönnun ásamt gerð útboðsgagna. Tíu stærstu verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækin í Noregi buðu í rammasamninginn við fylkið en eftir hæfnismat var EFLA í efsta sæti varðandi heildarmat á grundvelli hæfni og verðs. Rammasamningurinn við Vestfold og Telemark fylki gildir í 4 ár og er heildarverðmæti hans fyrir EFLU um 5 til 7 milljónum norskra króna á ári eða um 75 til 100 milljónum íslenskra króna á ári.

„Við höfum unnið að fjölmörgum krefjandi verkefnum í Noregi og meðal nýlegra verkefna er verkfræðihönnun á nýrri göngu- og hjólabrú við þjóðarleikvanginn Ullevaal í Osló sem bætir umferðaröryggi hjólandi og gangandi vegfarenda til muna. Þessi rammasamningur kemur til með að styrkja starfsemi samgönguhluta EFLU í Noregi enn frekar og höfum við áform um að bæta fleiri starfsmönnum í hópinn á næstunni.“ segir Ragnar.