Íslenska netmarkaðsfyrirtækið The Engine hefur verið í samstarfi við Google síðan við stofnun árið 2014 en í kjölfar sameiginlegrar ráðstefnu fyrirtækjanna fyrir ferðaþjónustuaðila var ákveðið að efla samstarf fyrirtækjanna enn frekar.

„The Engine er nú opinber samstarfsaðili Google eða „Premier Google Partner“. The Engine er eina fyrirtækið á Íslandi sem hefur hlotnast þessi nafnbót og er þessi viðurkenning mikilvægur áfangi í starfsemi fyrirtækisins,“ segir í yfirlýsingu félagsins.

„Google og The Engine stóðu fyrir sameignilegri ráðstefnu í Hörpu á dögunum þar sem ferðaþjónustaðilar bára saman bækur sínar og fóru yfir horfur á markaði, í framhaldi af því var ákveðið að efla samstarf fyrirtækjanna tveggja enn frekar.“

Fyrirtækið The Engine er með starfsstöðvar í Reykjavík, Osló og London og sérhæfir sig í markaðssetningu á Internetinu.

„Þetta er mikilvægur áfangi í rekstri fyrirtækisins og er mikil viðurkenning á okkar starfi. Með þessari viðurkenningu vottar Google gæði þjónustunnar sem að við veitum okkar viðskiptavinum og treystir okkur til að halda utan um stór og flókin alþjóðleg verkefni,“ segir Guðbjörn „Beggi“ Dan Gunnarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins The Engine á Íslandi, en hann segir að með þessu samstarfi:

„...fáum við aðgang að ýmsum gögnum og upplýsingum frá Google sem hjálpar okkur, og okkar viðskiptavinum gríðarlega ásamt því að hafa óheftan aðgang að okkar teymi innan Google sem staðsett er í Írlandi en þar eru Google með höfuðstöðvar sínar í Evrópu.

Við erum að sjálfsögðu stolt og ánægð og hlökkum til að þróa okkar samstarf okkar við Google frekar og halda þessari vegferð áfram.

Við erum það heppin að hafa fengið að koma að ótrúlega skemmtilegum verkefnum, bæði hér heima og erlendis þar sem við höfum stýrt herferðum fyrir fyrirtæki eins og Orange, Diadora, Santander, Sparibanken, Wow Air, Reykjavik Excursions, Arion Banka og Blue Car Rental svo nokkur séu nefnd.

Það er margt spennandi í farvatninu og áhugaverðir tímar framundan í markaðssetningu á Internetinu.“