Iðn- og tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík hefur skipað fagráð sem munu hafa aðkomu að þróun náms við deildina. Markmiðið er, að því er kemur fram í fréttatilkynningu, að tryggja enn betur að námið svari þörfum atvinnulífsins og að fyrirtæki fái til sín útskrifaða nemendur með þá þekkingu sem krafist er í nútíma starfsumhverfi. Fagráðin eru þrjú talsins og er hvert þeirra skipað þremur einstaklingum úr atvinnulífinu.

Hera Grímsdóttir, forseti iðn- og tæknifræðideildar HR, segir að fagráðin muni gegna mikilvægu hlutverki í skipulagningu náms við deildina. Fyrirtæki hafi einnig hag í stofnun fagráðanna þar sem þau geti komið sínum áherslum á framfæri í gegnum þau og kallað eftir námsframboði sem mest þörf er á hverju sinni á hverju fagsviði.

„Sem dæmi má nefna að síðastliðið haust hófst kennsla á nýrri námsbraut hjá okkur, upplýsingatækni í mannvirkjagerð, þar sem verið var að bregðast við ákveðinni þörf eftir ítarlega þarfagreiningu á markaði. Sú námsbraut hefur gengið mjög vel og greinilegt að þar vorum við að mæta ákveðinni þörf fyrir sérhæfða þekkingu og hæfni. Slíkt samtal við atvinnulífið er alltaf í gangi og í samvinnu við nýstofnuð fagráð erum við mjög opin fyrir því að stofna fleiri slíkar styttri námsbrautir.“

Auk þess að fylgjast með námsframboði iðn- og tæknifræðideildar hafi fagráðin það hlutverk að vera deildarráði til ráðgjafar við að móta stefnu, áherslur og framtíðarsýn deildarinnar.

„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við stofnun fagráðanna og þau skilaboð að þau séu afar nauðsynleg, bæði fyrir háskólann og atvinnulífið. Það er algjört lykilatriði fyrir okkur að vera í góðum tengslum við atvinnulífið og við höfum farið ýmsar leiðir í að styrkja þau tengsl. Það má til dæmis má nefna að meirihluti kennara við deildina kemur úr atvinnulífinu og nemendur fara í starfsnám út í fyrirtækin og vinna í flestum tilfellum lokaverkefni fyrir fyrirtæki,“ segir hún.

Fagráð byggingasviðs skipa:

  • Magnea Huld Ingólfsdóttir, byggingarverkfræðingur á samgöngu- og umhverfissviði Verkís
  • Guðbjartur Jón Einarsson, byggingarverkfræðingur hjá Mannviti
  • Sigurður Hafsteinsson, byggingartæknifræðingur og eigandi Vektors - hönnunar og ráðgjafar

Fagráð rafmagnssviðs skipa:

  • Erla Björk Þorgeirsdóttur, rafmagnsverkfræðingur og framkvæmdastjóri Verkfræðistofunnar Afls og Orku
  • Gunnar Ingi Valdimarsson, rafmagnstæknifræðingur og sérfræðingur á framkvæmda- og rekstrarsviði Landsnets
  • Ingvar Bjarnason, byggingafræðingur og verkefnastjóri hjá Nova
  • Ólafur Haukur Sverrisson, verkfræðingur hjá Össuri

Fagráð vél- og orkusviðs skipa:

  • Smári Guðfinnsson, vél- og orkutæknifræðingur hjá Verkfræðistofunni EFLU
  • Ásgrímur Sigurðsson, vél- og orkutæknifræðingur og framkvæmdastjóri viðhalds og áreiðanleika hjá Alcoa Fjarðaáli
  • Úlfar Karl Arnórsson, vél- og orkutæknifræðingur og Team Leader, Mechanical Design hjá Völku