Efling og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning í gær. Því hefur verkföllum Eflingar í Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi verið aflýst. Samningurinn á að gilda frá 1. janúar 2020 til 31. mars 2023.

Í tilkynningu frá Eflingu kemur fram að félagið fagni „langþráðum sigri í kjarabaráttu við sveitarfélögin“.

Samband sveitarfélaga segir að samningurinn sé í samræmi við aðra samninga sem samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi gert við 35 önnur stéttarfélög innan ASÍ og BSRB fyrir sömu eða sambærileg störf.  Með samningunum hafi Samband íslenska sveitarfélaga gert kjarasamninga við 47 stéttarfélög innan ASÍ, BSRB og BHM. Samningarnir eru allir gerðir í anda lífskjarasamnings á almennum vinnumarkaði.

Efling leggur hins vegar áherslu á að samningar hafi náðst um aukagreiðslu sem sé sambærileg kjarabót og í samningum félagsins við ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir.  „Þessar kjarabætur fyrir láglaunafólk hjá sveitarfélögunum, að stórum hluta konur í umönnunarstörfum, er beinn árangur af verkfallsaðgerðum og staðfastri baráttu félagsmanna á Höfuðborgarsvæðinu öllu síðan í byrjun febrúar. Önnur meginatriði samningsins eru samtals 90 þúsund króna hækkun grunnlauna í grunnþrepi yfir samningstímann, stytting vinnuvikunnar, 61 þúsund króna árlegt framlag í nýjan félagsmannasjóð og fleira,“ segir í tilkynningu frá Eflingu.

„Í enn eitt skiptið hefur Eflingarfólk í minnst metnu störfum samfélagsins sýnt að jafnvel grimmustu stofnanir valdsins eiga ekki roð við þeim þegar þau koma fram baráttuglöð og sameinuð. Í enn eitt skiptið hafa þau sannað að réttlát og staðföst barátta láglaunafólks í gegnum sitt stéttarfélag er ekki bara réttur okkar heldur skilar hún líka raunverulegum árangri,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

„Ég vil líka benda á hversu mikilvæg skilaboð félagsmenn okkar senda inn í samfélagsástandið með þessum árangri. Ef einhver hélt að kórónaveirufaraldurinn og efnahagslægðin sem honum fylgir yrði átylla til að skerða kjör láglaunafólks og berja niður í þeim baráttuandann, þá hafa félagsmenn okkar hjá sveitarfélögunum sýnt að það er ansi stór misskilningur. Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi og hefur aldrei skipt meira máli en einmitt núna,“ er enn fremur haft eftir Sólveigu Önnu í tilkynningunni.

Samningur er undirritaður með fyrirvara um samþykki þeirra 270 félagsmanna sem undir honum munu starfa. Hefst nú vinna við kynningu samningsins og undirbúning atkvæðagreiðslu.