Efling vísaði í dag kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu, sem segir að viðræður við Samtök atvinnulífsins samkvæmt viðræðuáætlun hafi reynst árangurslausar.

Samningafundur hjá ríkissáttasemjara hefur ekki verið boðaður. Áður hafa farið fram fjórir samningafundir milli SA og samninganefndar Eflingar í nóvember.

„Við erum eina félagið sem hefur sett fram kröfugerð með tölusettum launakröfum. Við höfum verið opinská og heiðarleg við okkar viðsemjendur. Áhuga- og virðingarleysi Samtaka atvinnulífsins gagnvart félagsfólki Eflingar er hins vegar algjört. Okkur eru ekki veitt svör eða viðbrögð. Það er því rétt og óhjákvæmilegt að vísa deilunni til ríkissáttasemjara eins og heimilað er í lögunum um kjaraviðræður,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

SA og Starfsgreinasamband Íslands (SGS) undirrituðu skammtímakjarasamning um liðna helgi sem gildir til 31. janúar 2024.

Samninganefnd Eflingar að loknum fundi með SA þann 14. nóvember.
© Aðsend mynd (AÐSEND)