Efnahagshorfur hafa versnaði töluvert á síðasta hálfa árinu að mati stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins sem tóku þátt í könnun Gallup fyrir Samtök atvinnulífsins (SA) og Seðlabankann. Þrátt fyrir versnandi horfur glímir fjöldi fyrirtækja við skort á starfsfólki. Stjórnendur telja launakostnað mesta áhrifavald verðbólgu.

Vísitala efnahagslífsins, sem endurspeglar mun á fjölda stjórnenda sem meta aðstæður góðar og slæmar, hefur hríðfallið á síðustu sex mánuðum, að því er kemur fram í frétt SA.

Um þriðjungur stjórnenda telur aðstæður góðar en fyrir hálfu ári taldi helmingur þeirra svo vera og nú telur þriðjungur aðstæður slæmar miðað við 12% fyrir hálfu ári síðan. Bjartsýni um batnandi horfur hefur einnig dvínað en hlutfall stjórnenda sem telur aðstæður fara batnandi á næstu sex mánuðum hefur lækkað úr 45% í 25% og hlutfallið sem telur þær fara versnandi hækkar úr 21% í 41%.

Meiri en helmingur glímir við starfsmannskort

Hjá 56,5% fyrirtækja í könnunni segjast stjórnendur glíma við skort á starfsfólki en hlutfallið hefur aukist um fimmung á einu ári. Í öllum helstu atvinnugreinum nema sjávarútvegi og fjármálastarfsemi býr yfir helmingur fyrirtækja við skort á starfsfólki.

Um 20% fyrirtækja búast við fjölgun starfsmanna, 22% við fækkun en tæp 60% við óbreyttum fjölda. Um 26 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni

Launakostnaður mesti áhrifavaldur verðbólgu

Verðbólguvæntingar stjórnenda umræddra fyrirtækja fara nú minnkandi eftir mikla hækkun þeirra undanfarin þrjú misseri. Væntingar um verðbólgu næstu 12 mánuði eru nú 5% og lækka um 1,0 prósentustig frá síðustu könnun. Þá lækka væntingar til tveggja ára úr 5,5% í 4,5%.

Stjórnendur vænta þess að verð á vöru og þjónustu fyrirtækjanna sem þeir stýra muni hækka að jafnaði um 4,5% á næstu sex mánuðum og að verð á aðföngum sem fyrirtækin kaupa af birgjum hækki um 6,3%. Á ársgrundvelli nema þessar hækkanir 9% og 11%.

Líkt og áður telja stjórnendur að launahækkanir séu megin skýring verðhækkana hjá fyrirtækjunum sem þeir stýra. Hlutfall stjórnenda sem telja launakostnað helsta verðhækkunartilefnið hækkar úr 40% í 49% frá síðustu könnun. Samtals setja 78% stjórnenda launahækkanir í fyrsta eða annað sætið.

Stjórnendur hafa einnig áhyggjur af hækkun aðfangaverðs en samtals 64% setja aðfangaverð í fyrsta eða annað sæti yfir þætti sem hafa mest áhrif til hækkunar á verði.

Í úrtaki könnunar Gallup fyrir SA og Seðlabankann voru 465 fyrirtæki sem teljast stærst á landinu miðað við heildarlaunagreiðslur og svöruðu 215. Þannig að svarhlutfall var 46%. Könnunin var gerð á tímabilinu 18. ágúst til 19. september 2022