Í erindi sem Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hélt á málþingi um styttingu vinnuvikunnar sagði hann frumvarp til laga um stytta vinnuviku vega að rótum íslenska kjarasamningalíkansins.
Frumvarpið var lagt fram af þingflokkum Pírata, Samfylkingar innar og Vinstri grænum, vega að rótum íslenska kjarasamningalíkansins og vera atlögu að samningsfrelsinu. BSRB var eini vinnumarkaðsaðilinn meðal umsagnaraðilanna sem studdi frumvarpið.
Í samtali við Viðskiptablaðið segir Hannes alla umræðu um styttingu vinnutíma á Íslandi byggjast á grafalvarlegum misskilningi og lýsir frumvarpinu sem efnahagslegu hryðjuverki.
Ársvinnutími stystur á Íslandi
„Íslendingar skilgreina hugtakið „vinnutíma“ öðruvísi en almennt gerist erlendis sem brenglar allan samanburð og ýkir lengd vinnu tíma hér á landi miðað við aðrar þjóðir. Hér á landi ríkir sá rót gróni misskilningur að dagvinnu vinnutími á viku sé að hámarki 40 stundir,“ segir Hannes.
"Þetta er ekki rétt, því dagvinnutíminn er að hámarki 37 stundir og 5 mínútur. Samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu er vinnu tími sá tími sem starfsmaður er við störf og til taks fyrir vinnu veitandann. Umsamin kaffihlé, yfirleitt 35 mínútur á dag, reiknast þannig ekki til vinnutíma."
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð.