Leiðandi hagvísir Analytica lækkaði áfram í maí og sem stendur eru engin töluleg merki um viðsnúning til hækkunar á ný. Miðað við að hagvísirinn hafi forspárgildi um vendipunkta næstu sex til níu mánuði er líklegt að djúpur efnahagssamdráttur vari inn á næsta ár.

Leiðandi hagvísirinn lækkaði um 1% frá síðustu tölum fyrir aprílmánuð og tók gildið 92,8 í maí. Sú tala á að gefa vísbendingu um framleiðslu sex mánuðum síðar þ.e. í nóvember 2020. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni. Hagvísirinn í maí er um 9% lægri en í sama mánuði í fyrra.

Fjórir af sex undirliðum lækka frá í apríl en mest framlag til lækkunar hefur minnkun ferðamannafjölda en einnig væntingavísitala Gallup og vöruinnflutningur. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta hefur verið sterk en í bráð hefur langtímaleitnin minna að segja. Sérstök óvissa er tengd ferðaþjónustu og lamandi áhrifum COVID-19 farsóttarinnar á efnahagslíf og uppnám á vettvangi alþjóðastjórnmála tengt henni.

Gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að hálfu ári liðnu

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í maí lækka fimm af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í apríl lækka fjórir af sex undirþáttum.

Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga.