Í gær ákvað eftirlitsstofnun EFTA (ESA) að heimila ríkisaðstoð til minni sparisjóða á Íslandi. Heimildin gildir í sex mánuði. Í fréttatilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða kemur fram að Sparisjóður Norðfjarðar, Sparisjóður Vestmannaeyja, Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Bolungarvíkur og Sparisjóður Þórshafnar munu njóta góðs af þessari aðstoð. Íslensk stjórnvöld eru skuldbundin til að leggja fyrir ESA áætlun um endurskipulagningu sérhvers þessara sparisjóða eigi síðar en 21. desember 2010. ESA hefur nú samþykkt endurfjármögnun sem miðar að því að gera sparisjóðunum kleift að halda áfram starfsemi á fjármálamarkaði. Þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið fela í sér uppgjör á opinberum kröfum á hendur sparisjóðanna, en Seðlabanki Íslends eignaðist þessar kröfur vegna þrots Sparisjóðabanka Íslands hf. Kröfurnar nema 8.293 milljónum íslenskum króna eða um 50 milljónum evra og verður þeim að hluta breytt í eigið fé og/eða víkjandi lán. Þá eru kröfurnar að hluta færðar niður. Hluta af kröfunum er breytt í almenn lán til fimm ára með vöxtum sem taka mið af aðstæðum. Fallist er á að um sé að ræða ófrávíkjanlegan þátt í heildarráðstöfunum til þess að mæta kröfum um eiginfjárhlutfall í samræmi við lágmarkskröfur Fjármálaeftirlitsins.