EFTA-ríkin náðu mikilvægum áfanga í Sviss í dag við að þokast nær fríverslunarsamningi við Mercosur-ríkin (þ.e. Brasilía, Úruguay, Argentína og Paraguay) þegar fulltrúar landanna undirrituðu yfirlýsingu sem staðfestir lok undirbúningsviðræðna fyrir gerð  fríverslunarsamnings. Gert er ráð fyrir að formlegar fríverslunarviðræður hefjist síðar á þessu ári en til þessa hafa viðræður EFTA-ríkjanna og Mercosur verið á grundvelli samstarfsyfirlýsingar frá árinu 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir að það sé mikið fagnaðarefni að ná þessum áfanga og tekur fram að EFTA-ríkin hafi stefnt að þessum áfanga í fjölda ára. „Hér er um að ræða einhverjar mikilvægustu fríverslunarviðræður EFTA um langt skeið enda markaðssvæðið gríðarstórt að vöxtum, með um 300 milljónir íbúa. Mercosur-ríkin  er það svæði í heiminum þar sem hagvöxtur verður hvað mest  í framtíðinni og það eru augljóslega miklir vaxtarmöguleikar fyrir íslenskar útflutningsgreinar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.