Eftirlaunalög Alþingis verða felld úr gildi, samkvæmt áformum stjórnarflokkanna. Þá er til alvarlegrar athugunar að afnema áunninn réttindi þeirra sem hafa fengið þau, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þá kom einnig fram að náist víðtæk sátt um málið verði hægt að afgreiða nýtt frumvarp í vor.

Í frétt RÚV er rifjað upp að í desember árið 2003 voru samþykkt lög frá Alþingi um eftirlaunakjör forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara. Fulltrúar allra þingflokka lögðu frumvarpið fram saman. Halldór Blöndal var fyrsti flutningsmaður en þegar að atkvæðagreiðslu kom féllu Vinstri græn og Frjálslyndir frá stuðningi við frumvarpið. Það var þó samþykkt með atkvæðum stjórnarliða og Guðmundar Árna Stefánssonar.

Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er skýrt kveðið á um að endurskoða beri þessi eftirlaunalög og nú er sú vinna á lokastigi.

Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á það í viðtali við RÚV að víðtæk sátt náist um þetta mál og því geti hún ekki fullyrt á þessu stigi hvort þetta frumvarp verður stjórnarfrumvarp eða hvort fleiri þingflokkar komi að því.