Umsjónaraðilum útboða ber ekki endilega að athuga greiðslugetu þeirra sem taka þátt í hlutafjárútboðum, samkvæmt svari Fjármálaeftirlitsins. Það getur þó verið í einhverjum tilvikum. Fer það eftir því hvort umsjónaraðilinn er að veita fjárfestingarráðgjöf eða eignastýringarþjónustu í tengslum við útboðið.

Í síðustu viku var greint frá því í Viðskiptablaðinu að FME hafi sent bréf til þátttakenda í hlutafjárútboðum VÍS og Tryggingamiðstöðvarinnar og krafið þá svara um fjárhæð tilboða sem þeir gerðu í hlutabréf fyrirtækjanna. Voru þeir m.a. krafðir svara um það hvernig þeir ætluðu að fjármagna tilboðin, sem í einhverjum tilfellum voru mjög há. Í hlutafjárútboðum tryggingafélaganna var töluvert um að menn væru að bjóðast til að kaupa mun meira af hlutabréfum en þeir í raun gátu fengið samkvæmt reglum útboðsins.

Leiddi það svo til þess að umframeftirspurn var mjög mikil, einkum í TM-útboðinu, þar sem eftirspurn var áttatíuföld á við framboðið á hlutabréfum.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér .